Úrræðaleit í Libby
Ef Libby virkar ekki eins og skyldi geta þessi einföldu úrræðaleitarskref lagað eða greint flest vandamál.

- Lokaðu Libby appinu, eða vafranum ef þú ert að nota libbyapp.com.
- Endurræstu tækið.
- Fjarlægðu öll kortin þín úr Libby og bættu þeim svo við aftur. Útlánin þín og frátektir birtast aftur í hillunni (
) þinni þegar þú bætir kortunum þínum aftur við.

- Prófaðu annað Wi-Fi netkerfi eða slökktu á Wi-Fi og notaðu farsímagögn.
- Athugaðu hvort einhverjar uppfærslur fyrir Libby sé að finna í forritaverslun tækisins og settu þær upp.
- Athugaðu hvort nægilegt geymslupláss sé í tækinu.
- Aðeins fyrir Android: Athugaðu hvort einhverjar uppfærslur sé að finna í Android System WebView og settu þær upp. Ef þú sérð það app ekki skaltu athuga með uppfærslur í Chrome í staðinn.
- Aðeins fyrir Android: Fjarlægðu SD-kortið ef slíkt er að finna í tækinu þínu.
Ef þessi skref virka ekki skaltu skoða greinarnar hér fyrir neðan til að finna tiltekið vandamál.