Að finna og merkja titla sem bókasafnið þitt býður ekki upp á

Athugaðu: Ekki bjóða öll bókasöfn upp á þennan eiginleika.

Þegar þú leitar í bókasafni í Libby finnurðu hugsanlega titla sem ekki eru í safnkosti þess. Við þessa titla er að finna Tilkynna mér hnapp (í staðinn fyrir Fá lánað eða Taka frá). Þegar þú velur Tilkynna mér verður til snjallmerki í Libby sem lætur þig vita ef eitthvað bókasafnanna þinna kaupir titilinn seinna meir.

Hér er hvernig á að finna og merkja titil sem er ekki í boði hjá bókasafninu þínu

  1. Leitaðu að ákveðnum titili, höfundi eða seríu.
    Sýnishornaleit gerð í Libby Academy Library fyrir höfundinn S.A. Crosby
  2. Ef þú sért titilinn sem þú hefur áhuga á og þar er að finna Tilkynna mér hnapp skaltu fara í 5. skref.
    Ef þú sérð ekki titilinn sem þú ert að leita að skaltu ganga úr skugga um að leitin þín hafi undir 100 niðurstöðum. Ef það eru fleiri niðurstöður skaltu reyna að gera ítarlegri leit (eins og allan titil bókarinnar og nafn höfundar).
  3. Flettu neðst á leitarniðurstöðuskjáinn, pikkaðu síðan á ítarleg leit.

    Ábending: Ef þú finnur ekki hnappinn fyrir ítarlega leit í síulistanum líka (með því að pikka á síutákn).
  4. Í nýju leitarniðurstöðum skaltu leita að titlinum sem þú hefur áhuga á.
    Athugaðu: Sumar bækur hafa aldrei verið gefnar stafrænt út og sumir stafrænir titlar eru hugsanlega ekki bókasafninu í boði til kaups.
  5. Ýttu á Tilkynna mér. Þú verður beðin(n) um að setja upp Tilkynna mér snjallmerki eða nota það sem þú hefur þegar sett upp.

Ef eitthvað bókasafnanna þinna kaupir titilinn færðu tilkynningu um það og hefur kost um að fá titilinn að láni eða láta taka hann frá (eftir stöðu hans).

Sýnishorn af vöktunartilkynningu fyrir titilinn Color Me In eftir Natasha Diaz. Á tilkynningunni stendur: Libby Academy Public Library býður nú upp á þennan titil.